laugardagur, 28 janúar 2012 | Heim


Það styttist í kynbótasýningar!
mánudagur, 18 apríl 2011

 

Nú styttist óðum í fyrstu Kynbótasýningarnar. Það er stefnt með 5 hross frá Ragnheiðarstöðum í kynbótadóm í vor. Þau eru Herjólfur (5v.) undan Hendingu f. Úlfsstöðum og Gígjari f. Auðsholtshjáleigu, Hákon (4v.) undan Hátíð f. Úlfsstöðum og Álfi f. Selfossi, Þrymur (4v.) undan Þrumu f. Hólshúsum og Hróðri f. Refsstöðum, Helga-Ósk (4v.) undan Hendingu f. Úlfsstöðum og Orra f. Þúfu og að lokum Sóldís (4v.) undan Ísbjörgu f. Ólafsvík og Arði f. Brautarholti. Öll lofa þau góðu, sjö, níu, þrettán. Mynd : Dalli.

 
Helga-Ósk f. Ragnheiðarstöðum er efnileg.
sunnudagur, 20 febrúar 2011

Systir Herjólfs og Hrundar, er virkilega efnileg, alhliðageng hryssa á 4ja vetri (2007) undan Hendingu frá Úlfsstöðum og Orra frá Þúfu, hún er því alsystir Hrundar frá Ragnheiðarstöðum sem fór í háan kynbótadóm á Gaddastaðarflötum (Hellu) sl. sumar. Einnig er hún mjög skyld Herjólfi bróðir sínum, því hann er undan gæðingnum og kynbótahestinum Gígjari (Orrasyni) frá Auðholtshjáleigu. Á dögunum þ.e. 14 feb, sl. náðum við nokkrum myndum af hryssunni og Jóni Páli Sveinssyni tamningarmanni í Hjarðartúni, en hryssan eru í eigu okkar og Hjarðartúns ehf.

Lesa meira...
 
Herjólfur á Ístölti 2011
sunnudagur, 03 apríl 2011

Herjólfur okkar frá Ragnheiðarstöðum stóð sig með sóma á stóðhestakynningu í skautahöllinni sl. laugardag. Herjólfur fór þarna í fyrsta skipti á ísinn og hafði aðeins verið teymdur á hann rétt áður. Með honum á ísnum var snilingurinn og jafnaldri Korkur frá Ingólfshvoli (báðir á 5v.) en ósýndir í kynbótadómi. Knapi á Herjólfi var sem fyrr Erlingur Erlingsson í Langholti en knapi Korks var Misa. Hægt er að sjá video af Herjólfi á foli.is og Ragnheiðarstaðir á Facebook.com

 
Herkúles kom sá og sigraði
sunnudagur, 13 mars 2011

 

 

 

 

 

Herkúles frá Ragnheiðarstöðum undan Hendingu okkar og Álfi frá Selfossi sigraði folaldasýningu Sörla 2011. 42 folöld voru skráð til leiks, hvert af öðru fallegra. Herkúles er stórskyldur Hákoni því þeir eru undan Hendingu og Hátíði, systrunum frá Úlfsstöðum. Herkúles vann folaflokkinn og var kosinn folald sýningarinnar af dómurum og brekkunni. Meraflokkinn vann Hákonardóttirin Mánadís frá Sæfelli og í öðru sæti í folaflokki var einnig Hákonsonur, Sæþór frá Stafholti og óskum við eigendum þeirra til hamingju með árangurinn. Mynd : Bragi Sverrisson.

 
Glódís og Geisli
miðvikudagur, 23 mars 2011

Glódís og nýi hesturinn hennar Geisli frá Möðrufelli (nýkominn að norðan) sigruðu unglingaflokkinn hjá Sörla sl. helgi. Keppt var í tölti á beinni braut. Myndina tók Ásta Björnsdóttir

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 5 af 40



© 2012 Ragnheiðarstaðir - Hönnun Íslenskir Hestar - Allur réttur áskilinn.